Leikskólinn

Sólgarður

Leikskólinn

Sólgarður

Velkomin á vefsíðu Sólgarðs

Hér má finna helstu upplýsingar um leikskólann okkar, á síðunni eru upplýsingar um daglegt starf, opnunartíma, skóladagatal, gjaldskrá, umsóknir, foreldrasamstarf og HighScope, þá stefnu sem við vinnum eftir.

Í leikskólunum leggjum við áherslu á hlýlegt og öruggt umhverfi þar sem börn fá að njóta sín, leika, læra og þroskast á eigin forsendum. Starfið byggir á virku námi, góðum samskiptum og virðingu fyrir hverju barni.

Við viljum að síðan nýtist foreldrum og forráðafólki sem skýr og aðgengileg upplýsingaveita. Ef spurningar vakna er alltaf velkomið að hafa samband við starfsfólk leikskólans.

Daglegt líf í leikskólanum

Dagskipulagið er okkar stundarskrá og innan hennar raðast öll þau verkefni sem leikskólinn hefur einsett sér að vinna og leysa úr með nemendum sínum. Skipulagning og tímasetning daglegra venja gefur starfinu reglubundið og ákveðið form sem skapar öryggi og festu og er unnið með hliðsjón af aldri barnanna og samsetningu barnahópsins.

Hvað er HighScope?

HighScope er bandarísk hágæðastefna sem byggir á langtímarannsóknum.

Í stuttu máli sagt er það virkt nám sem er hjarta HighScope stefnunnar. Börnin eru virkir þátttakendur í eigin námi og hafa tækifæri til að koma hugsunum sínum í orð og framkvæmd. Þau hafa tíma og næði til að kanna efniviðinn með öllum skynfærum sínum og fá til þess stuðning og hvatningu kennara.

Að byrja í leikskóla

Í aðlögun er lagður grunnurinn að góðu samstarfi og vellíðan barns í leikskóla. Börn þurfa mislangan tíma til að aðlagast nýju umhverfi, kynnast öðrum börnum starfsfólki leikskólans og læra að þekkja dagskipulagið. Aðlögunartíminn er því einstaklingsbundinn. Oftast er þó miðað við fimm virka daga í aðlögun
Engir tveir eru eins og aðlögunartíminn er því einstaklingsbundinn. Oftast er þó miðað við fimm virka daga í aðlögun.

Nýjustu fréttir

Leikskólinn Sólgarður

Leikskólinn Sólgarður er sjö deilda leikskóli á háskólasvæðinu, nánar tiltekið á Eggertsgötu 14. Síminn er…

Lesa