Sólgarður
High Scope
Á Sólgarði er unnið eftir bandarískri hágæðastefnu
Tveir kennarar leikskólans menntaðir HighScope kennarar og þjálfar.
Hornsteinn HighScope er trúin á að virkt nám sé undirstaðan fyrir manneskjuna til að ná fullum þroska og getu og að virkt nám sé árangursríkast í umhverfi þar sem börnin fá verkefni sem hæfa aldri og þroska þeirra. Nám er félagsleg reynsla þar sem börn eiga í miklum samskiptum í leik og starfi. Börn læra hlutina á ólíkan hátt, hafa ólík áhugamál og hlutirnir liggja misvel fyrir þeim en þau eru líkleg til að ná bestum þroska þegar þau eiga í samskiptum við aðra, bæði jafningja og fullorðna.
Persónulegt frumkvæði barnanna er það sem liggur að baki virku námi þeirra. Ung börn fylgja löngun sinni til að kanna hluti, þau spyrja og leita svara við spurningum um fólk, efni, hugmyndir og hluti sem þau hafa áhuga á og vekja forvitni þeirra, þau leysa vandamál sem koma í veg fyrir að þau nái markmiðum sínum og leita nýrra leiða til að ná þeim.
Í HighScope er einblínt á styrkleika barnanna
Í HighScope er einblínt á styrkleika barnanna og þau hvött til að koma hugmyndum sínum á framfæri og framkvæma þær. Börnin öðlast traust og frumkvæði, forvitni þeirra eykst, þau verða úrræðagóð, sjálfstæð og ábyrgðarfull ef þau fá tækifæri til að sýna hvað í þeim býr.
Virkir nemendur eru einbeittir og áhugasamir um eigin gjörðir og hugsanir. Þeir finna sér margt til dundurs og tala oft um það sem þeir ætla að gera. Börn í virku námsumhverfi taka ákvarðanir byggðar á eigin áhuga og eigin spurningum og þau fá tíma til að fylgja eigin áætlunum eftir. Þau eru í samskiptum við fólk sem þau deila hugmyndum sínum, athugunum og áætlunum með og fái þau viðeigandi stuðning og hvatningu frá kennara verða þau sífellt virkari í eigin námi.
Íris Dögg Jóhannesdóttir er þróunarstjóri og HighScope kennari.
Hér má finna algengar spurningar í tengslum við HighScope.
Uppruni HighScope-stefnunnar
HighScope-stefnan kemur frá Ypsilanti í Michigan í Bandaríkjunum. Upphafsmaður hennar er David Weikart, fæddur árið 1931. Hann mótaði stefnuna til að sporna við háu brottfalli fátækra nemenda úr gagnfræðiskólanum í Ypsilanti.
Nemendur úr fátækrahverfum höfðu árum saman skorað lágt á greindar- og akademískum prófum. Weikart leitaði skýringa á því hvers vegna þessi staða endurtók sig og hvernig hægt væri að koma í veg fyrir brottfall fátækra nemenda. Niðurstaða hans var sú að lágt skor nemendanna mætti frekar rekja til takmarkaðra tækifæra til undirbúnings fyrir skólagöngu en þess að börnin fæddust með lága greindarvísitölu.
Weikart og nokkrir skólastjórnendur fóru í kjölfarið að íhuga snemmtæka íhlutun fyrir 3–4 ára börn. Þeir urðu sífellt hrifnari af þeirri hugmynd að undirbúa börn á leikskólaaldri betur fyrir komandi skólagöngu. Weikart fékk því leyfi til að koma á fót leikskóla í Michigan. Hann og samstarfsfólk hans sneru sér að skrifum Jean Piaget, þar sem kenningar Piaget um þroska barna studdu heimspekilegt viðhorf þeirra til virks náms.
HighScope-stefnan byggir á langtímarannsóknum Weikarts og samstarfsfólks hans og hægt er að lesa nánar um rannsóknir þeirra á vef HighScope.
Hér á eftir er stiklað á stóru um helstu þætti dagskipulagsins í HighScope-umhverfi.
Virkt nám
Virkt nám er hjarta HighScope-stefnunnar. Börnin eru virkir þátttakendur í eigin námi og fá tækifæri til að koma hugsunum sínum í orð og framkvæmd. Þau fá tíma og næði til að kanna efnivið með öllum skynfærum sínum og fá til þess stuðning og hvatningu kennara.
Fimm þættir í virku námi
Fimm lykilþættir virks náms eru:
- efniviður
- meðhöndlun á efnivið
- val
- orð og hugsanir barna
- stuðningur kennara
Jákvæðar hliðar virks náms
Virkt nám veitir börnum og fullorðnum tækifæri til að kanna efnivið saman og koma hugmyndum sínum í framkvæmd.
Það dregur úr árekstrum milli barna og fullorðinna, þar sem kennarar hvetja, styðja og ýta undir að börnin fylgi eigin hugmyndum, áhuga og frumkvæði.
Virkt nám hjálpar börnum að viðhalda áhuga sínum á því sem þau taka sér fyrir hendur. Þar með minnka líkurnar á að þeim leiðist, þar sem þau fá að vinna með það sem þau sjálf hafa áhuga á.
Börnin fá einnig tækifæri til að þroska með sér getu til að sjá um sig sjálf og leysa eigin vandamál.
Virkt nám reynir á líkama og huga
Börn nota allan líkamann og öll skynfæri þegar þau kanna og fræðast um nánasta umhverfi sitt. Þau draga, ýta, færa hluti, kreista, setja ofan í og taka upp úr, setja hluti saman, henda, þefa, naga, hrista, rúlla og slá á hluti, svo fátt eitt sé nefnt. Af þessari reynslu byggja þau upp þekkingu á hlutunum í umhverfinu.
Um leið og börnin kanna efniviðinn og láta reyna á hugmyndir sínar er hugur þeirra virkur. Það liggur ákveðin hugsun að baki samskiptum þeirra. Þau spyrja og svara eigin spurningum, rekast á vandamál og leysa þau sjálf um leið og þau meðhöndla efniviðinn. Valið, opnar spurningar og tilraunir barnanna hjálpa þeim að skilja heiminn í kringum sig betur.
Dagskipulag
„Hvað gerum við núna?“, „Hvað gerist næst?“, „Hvenær höfum við tíma til…?“, „Hvenær förum við út?“ eru algengar spurningar hjá börnum.
Með sýnilegu dagskipulagi, sem er eins alla daga, öðlast börnin öryggi og sjálfstraust. Þau læra að treysta á dagskipulagið og vita í hvaða röð hlutirnir gerast.
Þegar börnum er gefinn tími til að vega og meta þá valkosti sem þau hafa, framkvæma það sem þau völdu og ljúka við það, eiga samskipti við aðra og fá tækifæri til að leysa sjálf úr vandamálum, eflist sjálfstæði þeirra og frumkvæði.
Skilaboðaskjóðan
Það er mikilvægt fyrir börnin að vita hvað er um að vera hverju sinni. Í gegnum skilaboðin, sem geta verið teikningar, tákn, orð, stafir eða tölustafir, „lesa“ börnin um sérstaka atburði, nýjan efnivið, breytingar á dagskipulagi, fjarveru barna og starfsmanna og ýmislegt annað sem getur haft áhrif á daginn þeirra.
Farið er yfir skilaboðaskjóðuna með öllum barnahópnum saman og börnin eru hvött til að „lesa“ hana.
Skilaboðaskjóðan ýtir undir lestur, eflir málþroska barnanna og hvetur til samræðna, lesturs og skriftar. Hún ýtir einnig undir getu barnanna til að leysa úr vandamálum og eflir félagsþroska þeirra.
Val
Val, leikstund og upprifjun er sá hluti dagskipulagsins sem tekur lengstan tíma.
Valið tekur um 10–15 mínútur. Börnin eiga sinn hóp og sinn kennara sem þau velja með og fara á ákveðið svæði þar sem valið fer fram. Misjafnar leiðir eru farnar til að velja. Börnin geta valið munnlega, með látbragði, myndum og/eða leikmunum, til dæmis síma, tölvumús, kíki, húllahring, bíl, blaði eða öðrum efnivið.
Barnið segir frá því hvað það langar að gera og deilir því með kennaranum og hópnum. Kennarinn hlustar og fylgist með og biður um frekari útskýringar ef þörf er á. Oft skráir kennarinn val barnsins á einhvern hátt, því það gerir barninu ljóst að val þess er mikilvægt og að tekið sé eftir því.
Með valinu tengja börnin áhuga sinn við leik með ákveðnum tilgangi.
Þegar börnin hafa valið mega þau fara strax á það svæði sem þau völdu sér og hefjast handa.
Leikstund
Þegar börnin hafa valið leggja þau upp í leikstundina með ákveðnar hugmyndir. Þar af leiðandi öðlast leikurinn ákveðinn tilgang og hefur meiri þýðingu fyrir þau.
Börn fá margar hugmyndir sem þau vilja reyna. Þegar þau fá tækifæri til að fylgja hugmyndum sínum eftir öðlast þau frumkvæði og framtakssemi þeirra eykst. Ef börn fá hins vegar ekki tækifæri til að fylgja hugmyndum sínum eftir geta þau hætt að taka af skarið og sýna frumkvæði.
Í leikstundinni fá börnin tækifæri til að framkvæma hugmyndir sínar, spyrja spurninga, meðhöndla efnivið og ræða við aðra um það sem þau eru að gera.
Í leikstundinni eflast einnig félagsleg samskipti. Börn leika oft nokkur saman og jafnvel þau börn sem kjósa að vera ein eru í návígi við önnur börn. Samskipti eiga sér því stað allt í kring.
Þessi tækifæri sem börn fá í leikstundinni leiða til þess að þau öðlast nýja þekkingu og betri skilning á heiminum í kringum sig. Jafnframt bæta þau við kunnáttu sína í stærðfræði, vísindum, listum, tónlist og fleiru.
Kennarar eru virkir þátttakendur í leikstundinni. Þeir taka þátt í verkefnum barnanna, styðja þau og hvetja eftir þörfum, allt á forsendum barnanna.
Að taka saman
Það er mikilvægt fyrir börnin að fá tíma til að ljúka þeim viðfangsefnum sem þau eru upptekin af hverju sinni. Tiltekt á að vera hluti af leiknum og börnin þurfa að fá tíma til að ljúka því sem þau eru að fást við.
Því er börnunum gefin viðvörun nokkru áður en á að fara að taka saman, svo þau fái tíma til að klára.
Mikilvægt er að skipuleggja aðferðir við tiltekt og gera þennan þátt dagskipulagsins að hluta af leiknum.
Rifja upp
Eftir leikstundina koma börnin saman með kennaranum og hópnum sem þau völdu með og rifja upp það sem þau voru að gera.
Kennarinn hlustar gaumgæfilega á börnin og ræðir við þau um það sem þau gerðu í leikstundinni. Eftir því sem börnin öðlast meiri reynslu í að rifja upp geta þau farið að segja frá í réttri röð hvað þau gerðu í leikstundinni.
Kennarinn notar ólíkar aðferðir við upprifjun, líkt og þegar börnin velja. Megintilgangurinn er að fá börnin til að hugsa um námsferlið sem þau fóru í gegnum í leikstundinni, auka orðaforða þeirra og hjálpa þeim að koma orðum að þeim athöfnum sem þau framkvæmdu.
Það er mikilvægur þáttur í námi barna að geta hugsað um það ferli sem átti sér stað og deilt því með öðrum. Með því að rifja upp tengja börnin saman valið og athafnir sínar í leikstundinni og ferlið fer að mynda eina heild fyrir þeim.
Kennarinn notar opnar spurningar sem hvetja börnin til að hugsa til baka og rifja upp.
Hópastarf
Í hópastarfi kynnir kennarinn efniviðinn fyrir börnunum. Börnin fá síðan að velja og ráða hvað þau gera við hann, því börn læra best af eigin reynslu með efniviðinn, ekki af því að horfa eingöngu á aðra meðhöndla hann.
Þetta þýðir að hvert barn í hópnum fær sinn eigin efnivið, til dæmis kubba, bíla, pensla og málningu eða annan efnivið sem unnið er með í hópastarfinu. Börnin fá síðan að vinna með efniviðinn á sinn hátt.
Hver hópatími veitir mörg námstækifæri. Börnin takast á við fjölbreyttar áskoranir þegar þau vinna með efniviðinn og velja hvernig þau vilja nota hann.
Samverustundir
Börn á leikskólaaldri eru oft mjög sjálflæg. Margt snýst um „mig“ og „mitt“. Þau eru að uppgötva sig sem einstaklinga og það er hluti af eðlilegu þroskaferli.
Til að verða hluti af stærra samfélagi þurfa börn að þroska með sér heilbrigt sjálf. Í samverustund fá þau tækifæri til að upplifa sig sem hluta af hópi. Þar sem allir taka þátt í samverustundinni myndast lítið samfélag þar sem börnin upplifa af eigin raun hvernig það er að vera hluti af heild, þar sem allt snýst um „okkur“.
Börnin koma öll með sitt innlegg í samverustundina, hvort sem það er tillaga að lagi, leik, hreyfingu eða hugmynd að einhverju öðru. Þannig eru þau virkir þátttakendur.
Það er mikilvægt að börnin fái að nota líkama sinn, efnivið, hljóðfæri eða annað í samverustundinni. Þau þurfa einnig að hafa val um hvernig þau hreyfa sig, hvaða lag er sungið, hvaða saga er sögð eða hvað er leikið.
Samverustundir gegna því mikilvægu hlutverki fyrir félags- og málþroska barna.
Lausnaleit
Dæmigerðir árekstrar í leikskólum tengjast oft hlutum, rými, forréttindum eða félagslegum samskiptum.
Hlutir:
Börn lenda í árekstrum þegar fleiri en eitt barn vilja leika með sama hlutinn á sama tíma.
Rými:
Börn lenda í árekstrum þegar fleiri en eitt barn vilja vera á sama svæði á sama tíma.
Forréttindi:
Börn lenda í árekstrum eða deilum þegar þau vilja ákveðin forréttindi, til dæmis fá að sækja matinn, vera fyrst í röðinni eða halda áfram að gera eitthvað þegar komið er að því að gera annað.
Félagsleg samskipti:
Börn lenda í árekstrum vegna félagslegra þarfa eða samskipta. Til dæmis geta tvö börn neitað öðru barni um þátttöku í leik, barn getur misskilið eitthvað sem annað barn sagði eða gerði, eða börnin geta haft ólíkan skilning á reglum leiksins.
Í lausnaleit er mikilvægt að kennarinn sé hlutlaus og taki ekki afstöðu með neinum. Kennarinn hlustar á allar hliðar og upplifun barnanna, viðurkennir tilfinningar og líðan hvers og eins, gerir efniviðinn eða dótið hlutlaust og spyr opinna spurninga til að hjálpa börnunum að finna lausn á vandanum.
Börnin koma oftast sjálf með lausnina. Lausnin þarf að virka fyrir börnin, ekki endilega fullorðna fólkið. Mikilvægt er að láta börnin finna að þau hafi sjálf leyst vandamálið og fylgja lausninni eftir.
Hér má finna sex þrep til að leysa vandamál.
Ávinningur af HighScope-stefnunni
Ávinningur HighScope-stefnunnar birtist meðal annars í:
- dagskipulagi sem er eins á hverjum degi, fyrirsjáanlegt en sveigjanlegt og hefur skýr markmið og tilgang fyrir börnin
- hlýjum og vinalegum samskiptum sem einkennast af virðingu og efla alhliða þroska barnsins
- því að gert er ráð fyrir frumkvæði barna
- markvissara starfi
- skýrari markmiðum kennara
- auknu öryggi kennara í starfi
Á heimasíðu HighScope má lesa nánar um stefnuna.
Í skólanámskrá Leikskóla FS má einnig lesa nánar um ofangreinda þætti HighScope-stefnunnar og fleira sem tengist starfinu.