Saga skólans
Þann 1. ágúst 1995 hóf Félagsstofnun stúdenta rekstur leikskólans Sólgarðs við Eggertsgötu 8. Í upphafi var leikskólinn staðsettur í tveimur íbúðum á Vetrargarði og þar dvöldu 28 börn á aldrinum sex mánaða til tveggja ára.
Árið 1996 tók Mánagarður til starfa og hefur Félagsstofnun stúdenta rekið leikskólann frá upphafi í samstarfi við Reykjavíkurborg.
Haustið 2001 var farið í umfangsmiklar breytingar á Sólgarði. Leikskólinn var stækkaður og aðstaða bætt svo hann uppfyllti betur nútímakröfur. Skólinn opnaði aftur að loknum breytingum í janúar 2002 og rúmaði þá 51 barn í heilsdagsvistun.
Árið 2006 ákváðu leikskólar Félagsstofnunar stúdenta að byggja faglegt starf sitt á HighScope-uppeldisstefnunni og hófst innleiðing hennar sama haust.
Mánagarður var stækkaður árið 2018 og fór þá úr fjórum deildum í sjö.
Árið 2023 voru Sólgarður og Leikgarður sameinaðir undir nafni Sólgarðs og það sama ár tók stækkaður Sólgarður til starfa.
HighScope
Vorið 2006 hittust leikskólastjórar þeirra þriggja leikskóla sem Félagsstofnun stúdenta rak á þeim tíma og ræddu faglega framtíð skólanna. Niðurstaðan varð sú að skólarnir myndu allir vinna eftir HighScope-uppeldisstefnunni.
HighScope á uppruna sinn í Bandaríkjunum árið 1962. Upphaflega var unnið eftir forvarnaráætlun sem hafði það markmið að styðja börn úr félagslega erfiðum aðstæðum sem höfðu ekki vegnað vel í skólakerfinu. Þegar í ljós kom að börnin sem tóku þátt í áætluninni sýndu góðan árangur var áfram þróuð námskrá og skólastefna fyrir yngri börn sem fékk síðar nafnið HighScope.
Heitið vísar annars vegar til þeirra háu markmiða sem sett eru í starfinu, High, og hins vegar til þeirra fjölbreyttu og víðtæku möguleika sem nám og þroski barna fela í sér, Scope.
HighScope-verkefninu var ýtt úr vör í leikskólum Félagsstofnunar stúdenta haustið 2006. Frá upphafi var lögð áhersla á að setja skýr og raunhæf markmið og byggja upp öflugt faglegt starf með vellíðan barna, starfsfólks og foreldra að leiðarljósi.
Barnið í forgrunni
Fimm meginþættir ramma HighScope-stefnuna inn:
– Virkt nám
– Jákvæð samvinna fullorðinna og barna
– Barnvænt námsumhverfi
– Dagskipulag
– Mat og skipulag náms
Kjarni HighScope er virkt nám. Börn fá tækifæri til að velja, taka ákvarðanir, kanna, prófa sig áfram og hafa áhrif á eigið nám og daglegt starf.
Þegar börn eru virkir þátttakendur í eigin námi þróa þau meðal annars sjálfstæði, frumkvæði, félagslega færni og trú á eigin getu. Þau fá að spyrja, handfjatla, gera mistök, leysa þrautir og finna lausnir í samræmi við aldur og þroska.
Hlutverk kennarans er að styðja við frumkvæði barnsins, fylgja hugmyndum þess eftir, spyrja opinna spurninga og skapa svigrúm fyrir þátttöku og sjálfstæði.
Námsumhverfið er skipulagt þannig að efniviður sé aðgengilegur og börn geti valið sér viðfangsefni og tekið virkan þátt í starfinu. Fyrirsjáanlegt dagskipulag styður jafnframt við öryggi og sjálfstæði barnanna.
Í HighScope er einnig lögð áhersla á markvissa athugun og mat. Kennarar fylgjast með námi, áhuga og þroska barnanna og nýta þær upplýsingar til að skipuleggja áframhaldandi starf og mæta þörfum hvers barns.
Markmiðið er að skapa námsumhverfi þar sem börn upplifa öryggi, þátttöku og áhrif og fá rík tækifæri til að læra í gegnum leik, reynslu og samskipti.