HighScope-hugvekjur eru stuttar greinar um hvernig HighScope-aðferðin er notuð til að takast á við algengar aðstæður og áskoranir í daglegu lífi barna, kennara og foreldra.

Hugvekjurnar eru hugsaðar sem fróðleikur fyrir alla sem koma að uppeldi ungra barna.

Barnið þitt var bitið

Hugvekjan „Barnið þitt var bitið“ hefur farið víða og hlotið góðar viðtökur. Margir leikskólar hafa nýtt sér hana í starfi sínu.

Í hugvekjunni má finna svör við algengum spurningum um bit, til dæmis af hverju börn bíta, hvað sé til ráða, hvernig fullorðnir geta brugðist við og fleira.

Hér má nálgast HighScope-hugvekjuna: Barnið þitt var bitið

Að skiptast á og leika saman

Fullorðnir segja börnum oft frá unga aldri að skiptast á. Að skiptast á getur hins vegar verið flókið þegar maður er ungur. Jafnvel þó allir fallist á að skiptast á, þarf samt að taka fleiri ákvarðanir.

Það þarf til dæmis að ákveða:

  • hver á að byrja
  • hver ræður því
  • hversu lengi sá sem byrjar má vera með hlutinn
  • hver ræður því
  • hver segir til þegar á að skipta
  • hver fylgist með því
  • hvort allir séu sáttir við lausnina

Þetta er ekki eins auðvelt og fullorðna fólkið heldur.

Hér má nálgast HighScope-hugvekjuna: Að skiptast á og leika saman

Viltu, eigum við, ætlar þú, ættum við?

Orð eins og viltu, eigum við, ætlar þú og ættum við eru vandmeðfarin. Þau þarf að nota á ákveðinn hátt eftir því hvaða valkostir eru í boði og hvort þeir eru raunverulegir eða ekki.

Ef börnum er gefið val sem er í raun ekki val getur það valdið ágreiningi sem auðvelt hefði verið að komast hjá. Þá er oft betra að taka skýrt fram það sem þarf að gerast eða það sem er að fara að gerast.

Fullorðnir nota þessi orð oft ómeðvitað og án þess að hugsa um hvað þeir eru í raun að segja.

Hér má nálgast HighScope-hugvekjuna: Viltu, eigum við, ætlar þú, ættum við?

Þegar við erum við það að missa okkur

Fullorðnum reynist stundum erfitt að hafa stjórn á skapi sínu og tilfinningum. Þá getur reynt á þegar börn gera eitthvað sem okkur mislíkar og okkur langar helst að öskra.

Hvað gerist þá? Hvaða möguleikar eru í stöðunni? Og hvernig getum við brugðist við á annan hátt?

Hér má nálgast HighScope-hugvekjuna: Þegar við erum við það að missa okkur

Segðu fyrirgefðu

Þegar maður segir „fyrirgefðu“ er það yfirleitt vegna þess að manni þykir eitthvað leitt og vill bæta fyrir það sem gerðist.

En eigum við að láta börn segja fyrirgefðu ef þau skilja ekki hvað vandamálið er?

Ef við segjum barni að segja fyrirgefðu, en barnið er ekki leitt yfir því sem það gerði eða skilur ekki vandamálið, segir það kannski bara fyrirgefðu til að losna úr aðstæðunum. Þá vakna spurningar um hvað barnið lærir af því.

Erum við að kenna barninu kurteisi með því að láta það segja fyrirgefðu? Eða erum við að missa af tækifæri til að hjálpa því að skilja hvað gerðist, hvernig öðrum leið og hvernig hægt sé að bæta úr?

Hér má nálgast HighScope-hugvekjuna: Segðu fyrirgefðu

Af hverju?

„Af hverju lætur þú svona?“ og „Af hverju gerir þú þetta?“ eru spurningar sem fullorðnir spyrja oft, stundum í ásökunar- eða uppgjafartón.

En geta ung börn alltaf útskýrt af hverju þau gráta í búðinni eftir langan leikskóladag? Geta þau útskýrt af hverju þau henda sér í gólfið þegar þau fá ekki það sem þau vilja?

Hvað geta fullorðnir sagt í staðinn fyrir „af hverju lætur þú svona?“

Hér má nálgast HighScope-hugvekjuna: Af hverju…?

Að koma með barnið í leikskólann og kveðja

Það getur stundum verið erfitt fyrir börn að koma í leikskólann. Sum börn eiga nánast alltaf erfitt með að koma, önnur ganga í gegnum tímabil þar sem þau vilja ekki koma í leikskólann og reyna að gera það sem þau geta til að vera lengur hjá mömmu eða pabba. Sum börn eiga erfitt með komu einstaka daga, á meðan önnur koma nánast alltaf brosandi og kát í leikskólann.

Það er mikilvægt fyrir alla aðila að skoða af hverju barnið á erfitt með að koma í leikskólann. Einnig getur verið gagnlegt að velta fyrir sér hvort það sé barnið sem eigi erfitt með að kveðja, foreldrið eða bæði.

Hér má nálgast HighScope-hugvekjuna: Að koma með barnið í leikskólann og kveðja