Veikindi
Leikskólinn er ætlaður fullfrískum börnum. Kennarar á Sólgarði gera ráð fyrir að börnin geti tekið þátt í öllu starfi leikskólans, bæði úti og inni. Þess vegna getum við ekki tekið á móti veiku barni.
Ef barn veikist í leikskólanum þurfa foreldrar að koma og sækja það.
Veikt barn getur smitað önnur börn og starfsfólk. Það getur haft í för með sér fjarvistir barna, foreldra og starfsmanna. Barn með smitandi sjúkdóm á að vera heima þar til smithætta er liðin hjá.
Algengt er að börn sem eru að hefja leikskólagöngu fái margar pestir fyrsta hálfa árið. Kvef er algengt hjá börnum og talið er að hvert barn fái kvef sex til tíu sinnum á ári.
Kuldi veldur ekki kvefi. Kvef orsakast af veirum sem berast með úðasmiti milli manna. Einkenni koma yfirleitt fram einum til þremur dögum eftir smit. Mikilvægt er að skýla öndunarfærum þegar hóstað er og þvo hendur vel og reglulega.
Veirur sem valda kvefi lifa betur í þurru lofti. Því eru meiri líkur á að börn smitist innandyra en utandyra.
Nauðsynlegt er að barnið jafni sig vel heima eftir veikindi og mæti aftur frískt í leikskólann. Barnið þarf að geta tekið þátt í allri daglegri starfsemi leikskólans, bæði úti og inni.
Veikindi ber að tilkynna til leikskólans. Góð og gild regla er að miða við að barn sé hitalaust heima í einn til tvo daga eftir veikindi áður en það mætir aftur í leikskólann.
Á heilsuveru má finna upplýsingar um helstu smitsjúkdóma barna.
Kinderpedia
Við nýtum samskiptaforritið Kinderpedia til að efla upplýsingaflæði og samstarf milli heimilis og leikskóla. Þar geta foreldrar fylgst með daglegu starfi barnsins, fengið mikilvægar tilkynningar og haft samskipti við starfsfólk. Kinderpedia hjálpar okkur að halda utan um upplýsingar á öruggan og aðgengilegan hátt.
Foreldraviðtöl
Foreldraviðtöl eru einu sinni á ári, á tímabilinu frá febrúar til maí. Um er að ræða einstaklingsviðtal þar sem deildarstjóri eða hópstjóri og foreldrar ræða barnið, stöðu þess og almenna líðan.
Foreldrum er að sjálfsögðu alltaf velkomið að óska eftir fundi með deildarstjóra eða leikskólastjóra ef þörf er á.
Aðventukaffi
Aðventukaffi fyrir foreldra og fjölskyldur barnanna er í desember.
Sumarhátíð
Sumarhátíðin okkar er haldin í júní
Sumarleyfi
Öllum börnum í leikskólanum er skylt að taka fjórar vikur samfellt í sumarleyfi. Leikskólinn er lokaður í fjórar vikur samfellt í júlímánuði.
Útivera og innivera
Útivera er hluti af daglegu starfi leikskólans og er börnunum mjög mikilvæg. Við stefnum að því að hvert barn fari út að minnsta kosti einu sinni á dag. Útiveru er ekki sleppt nema í algjörum undantekningartilfellum.
Börn sem eru inni allan daginn eru í sama loftinu allan tímann og fá ekki sömu tækifæri til að hreyfa sig, hreinsa lungun, styrkja sig og efla. Útivera styður við hreyfingu, vellíðan og heilbrigði barna.
Innivera kemur ekki í veg fyrir veikindi. Ekki er boðið upp á inniveru til að fyrirbyggja veikindi, til dæmis ef barn er með kvef eða hósta en er hraust að öðru leyti.
Þegar barn hefur verið veikt heima í nokkra daga getur verið heppilegt fyrir það að vera styttra úti en venjulega fyrstu dagana eftir veikindi. Þá er sjálfsagt að bjóða upp á þann möguleika að barnið fari fyrst út og fyrst inn, eða síðast út og fyrst inn.
Skilaboð um inniveru eða styttri útiveru þurfa að koma frá foreldrum sjálfum en ekki barninu.
Lyf
Lyf eru ekki gefin í leikskólanum nema í neyðartilfellum.
Komur og brottfarir
Nauðsynlegt er að láta starfsfólk vita þegar komið er með barn í leikskólann og einnig þegar barn er sótt.
Ef aðrir en foreldrar sækja barnið í leikskólann ber að láta starfsfólk vita.
Samkvæmt reglum frá Umboðsmanni barna er aldurstakmark þeirra sem sækja barn í leikskóla tólf ár.
Slys og óhöpp
Slys og óhöpp geta alltaf átt sér stað. Ef slíkt kemur fyrir höfum við strax samband við foreldra.
Ef þörf krefur er farið með barnið á slysadeild eða til tannlæknis.
Barnavernd
Samkvæmt lögum ber okkur að tilkynna hvers konar vanrækslu, ofbeldi eða misnotkun til barnaverndar.
Tilkynning er alltaf gerð undir nafni leikskólans.