Reglur ungbarnaleikskóla stúdenta

Börn foreldra/forráðamanna sem stunda nám við Háskóla Íslands hafa algjöran forgang að leikskólaplássum við ungbarnaleikskóla stúdenta.

Foreldrar/forráðamenn skulu framvísa staðfestingu á skráningu í nám við Háskóla Íslands (skólavottorð) við upphaf hverrar annar eða þegar eftir því er óskað.

Ef tilefni er til má Leikskóli FS kalla eftir staðfestingu á eðlilegri námsframvindu (2/3 af fullu námi) og/eða staðfestingu á námi við upphafi hverrar annar.

Ef sérstakar aðstæður krefjast þess getur leikskólastjóri, að fenginni umsókn og viðeigandi gögnum, veitt forgang innan hóps umsækjenda sem uppfylla skilyrði um nám við Háskóla Íslands.

Skilyrði fyrir leikskóladvöl er að foreldrar barnsins séu ekki í vanskilum við Félagsstofnun stúdenta.

Farið skal með allar umsóknir og upplýsingar sem þeim fylgja sem trúnaðarmál og hvílir þagnarskylda á starfsmönnum Leikskóla stúdenta.