“

Hvar sækir maður um á leikskóla stúdenta?

– Sótt er um leikskólapláss rafrænt í gegnum Völu.

“

Hvað líður langur tími frá því að maður sækir um og þar til að maður fær svör?

– Haft er samband um leið og pláss losnar. Einnig er sjálfsagt að hafa samband við viðkomandi leikskólastjóra til að fá upplýsingar um stöðu á biðlista.

“

Eftir hverju er farið á biðlista?

– Farið er eftir kennitölu barns. Það þýðir að tekið er inn eftir aldri barna, þau elstu fyrst.

“

Er hægt að sækja um forgang?

– Já, hægt er að sækja um forgang ef sérstakar aðstæður eiga við. Samkvæmt Reykjavíkurborg geta eftirfarandi börn átt rétt á forgangi:
Ef annað eða báðir foreldrar eru í námi í Háskóla Íslands.
Börn sem búa við alvarlegar aðstæður, til dæmis barnaverndarmál, alvarleg veikindi, fötlun eða félagslega erfiðleika í fjölskyldu barnsins
Ef umsókn um forgang er samþykkt fer barnið fremst á biðlistann. Ef fleiri en ein forgangsumsókn er í sama leikskóla er tekið inn eftir aldri. Barn með forgang byrjar í fyrsta lagi í leikskóla 9 mánaða gamalt á Sólgarði.
Sótt er um forgang á Mínum síðum Reykjavíkurborgar og fylgigögn, til dæmis vottor
ð

“

Geta aðrir en HÍ nemendur sótt um?

– Allir geta sótt um hjá Leikskólum FS. Háskólanám er ekki skilyrði fyrir leikskóladvöl þar.

En börn foreldra í námi við HÍ hafa algjöran forgang inn á Sólgarð.

“

Er systkinaafsláttur ef ég á barn í öðrum leikskóla?

– Já. Systkinaafsláttur reiknast sjálfkrafa fyrir börn sem eiga sama lögheimili. Afslátturinn gildir þvert á þjónustu dagforeldra, leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila.

Systkinaafsláttur af dvalargjaldi er 100% fyrir hvert barn umfram eitt. Systkinaafsláttur af fæði er 100% hjá börnum umfram tvö í leikskóla, grunnskóla og frístundaheimili.

“

Hvað kostar mánuðurinn?

– Leikskólagjöld eru innheimt fyrirfram í netbanka. Reykjavíkurborg niðurgreiðir hluta leikskólagjalda en annað greiðist samkvæmt gjaldskrá.

Ný gjaldskrá Reykjavíkurborgar tók gildi 1. apríl 2026. Samkvæmt henni er ekki greitt námsgjald fyrir vistun sem er 36 klukkustundir á viku eða skemur; þá er aðeins greitt fæðisgjald.

Gjöld og afslættir geta tekið mið af tekjum forsjáraðila, fjölskylduaðstæðum og því hvort barnið er í borgarreknum eða sjálfstætt starfandi leikskóla. Umsókn um afslátt fer fram í gegnum Völu eftir að barn er byrjað í leikskóla.

Athugið: Gjaldskrá fyrir Sólgarð og börn yngri en 18 mánaða er önnur en almenn gjaldskrá Reykjavíkurborgar. Best er að hafa samband við leikskólastjóra til að fá nákvæmar upplýsingar um gjöld.

“

Hverjar eru reglur varðandi börn stúdenta?

Börn foreldra/forráðamanna sem stunda nám við Háskóla Íslands hafa algjöran forgang að leikskólaplássum við ungbarnaleikskóla stúdenta.

Foreldrar/forráðamenn skulu framvísa staðfestingu á skráningu í nám við Háskóla Íslands (skólavottorð) við upphaf hverrar annar eða þegar eftir því er óskað.

Ef tilefni er til má Leikskóli FS kalla eftir staðfestingu á eðlilegri námsframvindu (2/3 af fullu námi) og/eða staðfestingu á námi við upphafi hverrar annar.

Ef sérstakar aðstæður krefjast þess getur leikskólastjóri, að fenginni umsókn og viðeigandi gögnum, veitt forgang innan hóps umsækjenda sem uppfylla skilyrði um nám við Háskóla Íslands.

Skilyrði fyrir leikskóladvöl er að foreldrar barnsins séu ekki í vanskilum við Félagsstofnun stúdenta.

Farið skal með allar umsóknir og upplýsingar sem þeim fylgja sem trúnaðarmál og hvílir þagnarskylda á starfsmönnum Leikskóla stúdenta.

“

Get ég verið hálfan daginn?

– Velja þarf dvalartíma þegar sótt er um leikskólann á Völu, samkvæmt gjaldskrá Reykjavíkurborgar er ekki greitt námsgjald fyrir vistun sem er 36 klukkustundir á viku eða skemur, þá er aðeins greitt fæðisgjald.

Hægt er að velja þann vistunartíma sem hentar innan þess ramma sem leikskólinn býður upp á. Lágmarksskráning er 36 klukkustundir á viku. Foreldrum er þó að sjálfsögðu heimilt að sækja barnið fyrr eða hafa það styttri daga þegar það hentar fjölskyldunni.

“

Hvenær opnar/lokar skólinn?

– Mánagarður er opinn frá 7:30-16:30 á eldri deildunum (3-6 ára) en yngri deildirnar (1-3 ára) eru opnar frá 8-16.

– Sólgarður er opinn frá 7:45-16:00

“

Hvað eru mörg börn á starfsmann?

– Á ungbarnaskólunum eru fjögur börn á hvern starfsmann.

Þetta er mismunandi eftir aldri barnanna og er því misjafnt á Leikskóla FS, allt frá fjórum upp í átta börn á starfsmann

“

Hvað er HighScope?

– HighScope er uppeldis- og menntastefna sem leggur áherslu á virkt nám barna. Í HighScope eru börn virkir þátttakendur í eigin námi og fá tækifæri til að velja, framkvæma, rannsaka, prófa sig áfram og setja reynslu sína í orð.

Börnin fá tíma og næði til að kanna efnivið með öllum skynfærum sínum. Hlutverk kennara er að styðja börnin, hvetja þau áfram, fylgjast með námi þeirra og skapa aðstæður þar sem þau læra í gegnum leik, samskipti og eigin reynslu.

Hér má finna frekari fróðleik um stefnuna:

http://highscope.org

http://managardur.leikskolinn.is/HighScope

“

Hvað eru margir starfsdagar á ári?

– Sex, þar af er einn með fasta dagsetningu en það er miðvikudagurinn fyrir páska.

“

Þarf að greiða fyrir aðlögunartímann?

– Já, upphafsdagur leikskólavistar er fyrsti dagur í aðlögun og því er aðlögun hluti af dvalargjaldi.

“

Þarf að skila læknisvottorði ef barnið mitt er með fæðuóþol/ofnæmi?

– Já. Ef barn er með fæðuóþol eða ofnæmi þarf að upplýsa leikskólann og skila læknisvottorði þar sem það á við.

“

Hvað á ég að fylla út ef ég er einstæð/ur?

– Umsókn um afslátt af leikskólagjaldi fer fram í gegnum Völu þegar barn er byrjað í leikskóla. Umsækjandi þarf að vera með sama lögheimili og barnið. Afslátturinn á einnig við um sjálfstætt starfandi leikskóla.
Samkvæmt Reykjavíkurborg taka afslættir mið af tekjum forsjáraðila. Fyrir einstæða foreldra eru afslættir af námsgjaldi eftirfarandi:
árstekjur undir 8 milljónum króna: 75% afsláttur
árstekjur 8–13 milljónir króna: 50% afsláttur
árstekjur yfir 13 milljónir króna: 40% afsláttur
Ef barn á lögheimili utan Reykjavíkur er best að hafa samband við leikskólastjóra eða viðkomandi sveita

“

Hvernig segi ég upp?

– Uppsagnarfrestur fyrir leikskólapláss er einn mánuður. Breytingar á dvalartíma og uppsagnir miðast við 1. eða 15. hvers mánaðar.

Uppsagnareyðublöð má nálgast hjá leikskólastjóra eða deildarstjóra.

“

Get ég fengið afslátt af gjöldum ef barnið mitt hefur ekki nýtt plássið vegna veikinda?

– Geti barn ekki sótt leikskóla vegna veikinda í fjórar vikur samfellt eða lengur geta foreldrar sótt um allt að 50% afslátt af leikskólagjöldum. Afsláttur er veittur fyrir þann tíma er veikindi vara gegn framvísun læknisvottorðs sem staðfestir að barnið hafi ekki getað sótt leikskóla.

“

Hvar sé ég matseðilinn?

– Matseðill er aðgengilegu í smáforritinu Kinderpedia.