Leikskólinn Sólgarður

Leikskólinn Sólgarður er sjö deilda leikskóli á háskólasvæðinu, nánar tiltekið á Eggertsgötu 14. Síminn er 551-9240 og netfangið solgardur@fs.is. Börn foreldra/forráðamanna sem stunda nám við Háskóla Íslands hafa algjöran forgang að leikskólaplássum við ungbarnaleikskóla stúdenta.
Barnahópurinn okkar er nokkuð fjölmennur, hér dvelja 115 börn á aldrinum níu mánaða til þriggja ára og þeim sinna af kostgæfni rúmlega 40 starfsmenn. Leikskólastjóri Sólgarðs er Ástarós Snævarsdóttir, astaros@fs.is. Aðstoðarleikskólastjóri Sólgarðs er Júlía Kristjánsdóttir, juliak@fs.is.