Svefn og hvíld

Á Sólgarði er hádegismatur og hvíldartími á öllum deildum á milli kl. 10:30 og 13:00. Á þessum tíma njóta börnin rólegra stunda sem eru mikilvægur þáttur í vellíðan þeirra, þroska og dagskipulagi leikskólans.

Fyrirkomulag hvíldar fer eftir þörfum hvers barns. Svefntími barna er einstaklingsbundinn og því sofa sum börn lengur en önnur.

Til að tryggja börnunum sem mesta ró og samfellu í daglegu starfi tökum við almennt ekki á móti börnum á milli kl. 10:30 og 13:00. Á þessum tíma stendur yfir hádegismatur, undirbúningur fyrir hvíld og hvíld barnanna.

Ef barn þarf að mæta eftir kl. 10:30 vegna læknistíma eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna þarf að ræða það sérstaklega við starfsfólk deildarinnar fyrirfram svo hægt sé að skipuleggja komu barnsins á sem bestan hátt.

Við biðjum einnig foreldra og forráðamenn að láta starfsfólk deildarinnar vita fyrirfram ef sækja þarf barn á meðan hvíld stendur yfir. Með góðu samstarfi getum við stuðlað að því að hvíldartími barnanna verði sem rólegastur og notalegastur fyrir alla.