Langar þig að vinna með okkur?

Á Sólgarði starfa um 45 manns á sjö deildum og saman myndum við lifandi, fjölbreyttan og skemmtilegan vinnustað þar sem samvinna, fagmennska og gott starfsumhverfi skipta okkur máli.

Við erum alltaf opin fyrir því að heyra frá góðu fólki sem hefur áhuga á að starfa með börnum og vera hluti af leikskólasamfélaginu okkar.

Ef þú hefur áhuga á að starfa hjá okkur getur þú sent ferilskrá og stutta kynningu á:

Ástarós leikskólastjóri – astaros@fs.is
eða
Júlía aðstoðarleikskólastjóri – juliak@fs.is

Við hlökkum til að heyra frá þér!